ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Sjónvarpsmanni bjargað eftir 50 daga í óbyggðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:22 › 27. ágúst 2009
Ed var bjargað úr óbyggðum Kanada eftir að hafa dvalið þar í 50 daga.

Ed var bjargað úr óbyggðum Kanada eftir að hafa dvalið þar í 50 daga.

Breskum sjónvarpsmanni var bjargað úr óbyggðum Yukon-héraðs í Kanada eftir að hafa dvalið þar í fimmtíu daga. Maðurinn, sem heitir Ed Wardle, var að vinna við gerð þáttar fyrir Channel 4 sjónvarpsstöðina en í þættinum átti að fylgjast með lífsbaráttu Wardle í óbyggðum.

Ed gafst hinsvegar upp og notaði neyðarsíma til að hringja í framleiðanda þáttarins og bað um að sér yrði bjargað. Ástæðan fyrir þessu var sú að Ed átti erfitt með að finna mat og þá var kuldinn á næturna að gera út af við hann. Hann ákvað að hringja eftir aðstoð eftir að hafa séð spegilmynd af sjálfum sér í vatni sem hann baðaði sig í.

„Ég hélt ég gæti þraukað en ég vissi að ég gæti það ekki þegar ég sá að ég hafði misst mörg kíló og beinin stóðu út úr húðinni,“ segir Ed sem áður hefur klifið Everest-fjall. Hann segir að síðustu dagana hafi hjartslátturinn farið niður í 30 slög á mínútu og hann hafi þurft að sætta sig við eina máltíð á tveggja daga fresti.

Hugmyndin að baki þættinum kom eftir sýningu myndarinnar Into the Wild. Hún segir einmitt frá reynslu Christopher McCandless sem lést í Yukon eftir að hann ákvað að freista þess að lifa út í náttúrunni, fjarri mannabyggðum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.