Eiginmaður sem gripinn var glóðvolgur af eiginkonu sinni við að halda framhjá henni með annarri konu tók út refsingu sína með óvenjulegum hætti í gær. Hann samdi við eiginkonu sína að bera flennistórt skilti fyrir utan verslunarmiðstöð í Virginíu sem á stóð „Ég hélt framhjá. Þetta er refsingin mín.“
William Taylor stóð fyrir framan Tysons Corner verslunarmiðstöðina í Centreville í Virginíuríki í gær og auglýsti misgjörðir sínar fyrir morgunösinni. Athæfið vakti skiljanlega mikla athygli.
Í samtali við Fox-fréttastofuna segir Taylor að þetta hafi verið samkomulag milli sín og eiginkonunnar.
„Ég hélt að hún væri að fíflast en henni var full alvara með þessu. Og þetta er bara það sem ég þarf að gera til að bæta fyrir gjörðir mína. Því er ég hér.“
Taylor sagði í gær að hann myndi endurtaka leikinn í dag og á föstudaginn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu