Hin 26 ára gamla Kathleen Neill var gripin glóðvolg í gær innan um klassískar nektarmyndir Metropolitan listasafnsins í New York þar sem hún ákvað að herma eftir fyrirsætum hinna ómetanlegu listaverka. Neill er fyrirsæta sem var að vinna fyrir hinn umdeilda Zach Hyman sem sérhæfir sig í nektarmyndatökum á almenningsstöðum.
„Allt gekk frábærlega þar til í lokin,“ hefur New York Post eftir Hyman. „Þá fór allt á versta veg.“
En Hyman virðist þó alltaf verið viðbúinn því að vera gripinn glóðvolgur með nakið fólk fyrir framan linsuna því hann viðurkennir að vera með lögfræðinginn sinn sem fyrsta númer á farsímanum sínum og reiðufé til staðar til að borga tryggingarlausn sína verði hann tekinn.
Vörður í safninu útskýrir í New York Post að stúlkan hafi verið afhent lögreglunni eftir að hún var stöðvuð við fyrirsætustörfin.
„Það voru lítil börn að fylgjast með þessu öllu saman.“




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu