Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Einhverjir úr hópnum köstuðu ýmsu smálegu í Hannes Hólmstein, meðal annars bakpoka. Aðrir létu sér nægja að berja á potta og pönnur þegar hann mætti á svæðið. Mynd Róbert Reynisson
Aðsúgur var gerður að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni á Austurvelli í dag. Hannes þurfti að flýja hópinn og leitaði skjóls í Alþingishúsinu en einhverjir úr hópnum köstuðu ýmsu smálegu í hann, þar á meðal bakpoka. Hannes var með Svartbók kommúnismans undir höndinni sem hann hefur nýlega þýtt.
Að því er fram kemur á vef RÚV virðist sem Hannes hafi ætlað að taka þátt í mótmælunum en hann varð frá að hverfa þegar fólk fór að kasta ýmsu lauslegu í hann. Talið er að um 300 manns hafi komið saman á Austurvelli en mótmælin fóru að mestu leyti friðsamlega fram.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision