ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Klámfengnar sælgætisumbúðir?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:21 › 27. ágúst 2009
Klámfengnar umbúðir? Dæmi hver fyrir sig.

Klámfengnar umbúðir? Dæmi hver fyrir sig.

Sælgætisframleiðandinn Haribo hefur sætt töluverðri gagnrýni fyrir umbúðir utan um sælgæti sem fyrirtækið framleiðir. Um er að ræða sælgætið MAOAM en á umbúðunum er engu líkara en ávextirnir framan á séu í lostafullum kynlífsleikjum.

Einn þeirra sem gagnrýnt hefur fyrirtækið er Simon Simpkins, tveggja barna faðir sem keypti sælgætið fyrir börnin sín. Hann segir að sér hafi verið verulega brugðið þegar hann skoðaði umbúðirnar nánar. „Sítrónan og súraldinið virðast eiga holdlegt samneyti,“ segir Simon í samtali við The Sun.

En forsvarsmenn Haribo segja að umbúðirnar hafi verið í umferð frá árinu 2002 og segja að ekkert klámfengið sé við þær. Þvert á móti sé sælgætið vinsælt meðal barna og umbúðirnar hafi vakið mikla lukku.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.