Laun Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Stoða, munu lækka um 70 prósent, úr fimm milljónum króna í eina og hálfa milljón króna. Í Fréttablaðinu í dag kom fram að laun Jóns væru 9,4 milljónir á mánuði. Eiríkur Þorláksson, stjórnarformaður félagsins, segir í tilkynningu að launin séu hinsvegar fimm milljónir.
Þá kemur fram að Stoðir séu ekki í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja eins og fram kom í frétt Fréttablaðsins. Stjórn Stoða gerir einnig athugasemd við frétt RÚV síðastliðið mánudagskvöld, þar sem kom fram að kröfuhafar Stoða hafi með samþykkt nauðasamninga sett pottlokið kyrfilega á Stoðir og hindrað þar með skoðun á starfsháttum félagsins.
„Þetta er fjarri sanni, enda hafa nauðasamningar ekkert slíkt í för með sér. Síðastliðnar vikur hefur stjórn Stoða látið gera ítarlega skoðun og úttekt á öllu sem viðkemur rekstri og viðskiptum félagsins með tilliti til hugsanlegrar riftunar gjörninga. Niðurstaða þeirrar vinnu, sem unnin er af óháðum endurskoðendum og lögmönnum, mun liggja fyrir bráðlega,“ segir í tilkynningunni.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning