Börn mega kaupa klám í Bretlandi

Ótrúleg yfirsjón breskra stjórnvalda heimilar sölu á bönnuðu efni til barna.

Ótrúleg yfirsjón breskra stjórnvalda heimilar sölu á bönnuðu efni til barna.

Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl 23:15

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Sölumenn klám- og ofbeldisefnis í Bretlandi geta ekki verið sóttir til saka fyrir að selja börnum undir lögaldri vörur sínar næstu þrjá mánuðina eftir að upp komst um 25 ára gamalt klúður stjórnvalda.

Bresk stjórnvöld hefðu átt að tilkynna Evrópuráðinu um tilvist myndbandalaga frá árinu 1984 (Video Recordings Act 1984) sem stjórna iðnaðinum en það gerðu það ekki.

„Því miður þýðir uppgötvunin á þessari yfirsjón það að aldarfjórðung síðar er ekki lengur hægt að framfylgja VRA-lögunum gegn einstaklingum í dómstólum Bretlands,“ segir Barbara Follett, menningar- og ferðamálaráðherra Breta um málið.

Follett segir að fólk sem verið er að sækja til saka fyrir brot á þessum lögum yrði ekki dæmt fyrr en ný lög taka gildi eftir þrjá mánuði sem er sá tími sem tekur að bera lögin undir önnur ríki Evrópusambandsins.

Í millitíðinni er því mögulegt að selja klám- og ofbeldisefni til barna undir átján ára aldri án þess að lenda í vandræðum.

Þeir sem hafa þegar verið dæmdir fyrir brot gegn þessum lögum munu þó ekki getað áfrýjað þeim.

Samkvæmt upplýsingum frá bresku myndbandasamtökunum (e. British Video Association) munu dreifingaraðilar enn leggja allt myndefni fyrir breska kvikmyndaeftirlitið til að láta flokka það og biðja meðlimi sína um að virða aldurstakmörk.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 6. september 2009 kl 23:36

Amma hótaði að sprengja skóla

Sunnudagur 6. september 2009 kl 22:31

Fjölskylduharmleikur í Louisiana

Sunnudagur 6. september 2009 kl 21:55

Vildi heilla Hells Angels

Sunnudagur 6. september 2009 kl 21:08

Bílvelta í Arnarfirði

Sunnudagur 6. september 2009 kl 20:40

90 handteknir eftir óeirðir í Birmingham - Myndir

Sunnudagur 6. september 2009 kl 20:24

Bróðir meints fjöldamorðingja: „Hann er saklaus“

Sunnudagur 6. september 2009 kl 19:49

Hálft ár og engin mál á lokastigi

Sunnudagur 6. september 2009 kl 19:19

Ný útvarpsstjarna í janúar

Sunnudagur 6. september 2009 kl 19:16

Frægir nágrannar Eiðs Smára

Sunnudagur 6. september 2009 kl 18:41

Trúir á álfa

Sunnudagur 6. september 2009 kl 18:00

Hröktu þjófana á brott

Sunnudagur 6. september 2009 kl 17:29

Þingmaður kvartar undan guðfræðingi

Sunnudagur 6. september 2009 kl 17:07

Bloggarar gætu fengið fimm ára dóm

Sunnudagur 6. september 2009 kl 16:30

Draugaskipið sem hvarf var hlaðið vopnum

Sunnudagur 6. september 2009 kl 16:23

Stálu af ferðamönnum á gistiheimili

Sunnudagur 6. september 2009 kl 15:24

Barnaníðingur vill láta gelda sig

Sunnudagur 6. september 2009 kl 14:22

Netníðingar halda fram drykkjuskap og kvennafari

Sunnudagur 6. september 2009 kl 14:15

Stiglitz: Hræðsluáróður AGS tóm vitleysa

Sunnudagur 6. september 2009 kl 13:13

Jón Daníelsson: Traust á Íslandi eykst

Sunnudagur 6. september 2009 kl 13:01

Konurnar vilja jafnrétti í Sjálfstæðisflokknum