Bifreið myrtrar fyrirsætu fannst í Hollywood

Jasmine Fiore og Ryan Jenkins sem talinn er hafa myrt hana og flúið til Kanada.

Jasmine Fiore og Ryan Jenkins sem talinn er hafa myrt hana og flúið til Kanada.

Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl 16:44

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Hvít Mecedes Benz bifreið fyrirsætunnar Jasmine Fiore sem lögreglan í Los Angeles hefur leitað í tengslum við rannsókn á hrottafengnu morði hennar er fundin. Talið er að Fiore hafi verið myrt af kærasta sínum Ryan Jenkins í bílnum áður en hann faldi lík hennar í ferðatösku og henti í ruslagám í Orange County þann 15. ágúst.

Lögreglunni í Los Angeles barst nafnlaus ábending um að bílinn væri að finna á bílastæði í Vestur-Hollywood og var hann fjarlægður af vettvangi með dráttarbíl.

Eins og DV.is hefur greint frá var morðið á Fiore fremur hrottafengið þar sem allir fingur og allar tennur hennar höfðu verið fjarlægðar til að erfiðara yrði fyrir lögreglu að bera kennsl á líkið. Lögreglan bar kennsl á hana með því að nota framleiðslunúmerið á silíkonígræðslum hennar.

Allt um málið má lesa hér að neðan með að smella á hlekkinn: Lík fyrirsætu í ferðatösku.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 23. ágúst 2009 kl 22:10

Foreldrarnir hylma yfir með fyrirsætumorðingja

Laugardagur 22. ágúst 2009 kl 22:00

Silíkonígræðslan hjálpaði lögreglunni

Föstudagur 21. ágúst 2009 kl 19:09

Fjarlægði tennur og fingur fyrirsætunnar

Miðvikudagur 19. ágúst 2009 kl 10:18

Lík í ferðatösku reyndist fyrirsæta