ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Vill fyrirgefningu vegna KB- bankaauglýsingar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:03 › 27. ágúst 2009
Þorsteinn Guðmundsson grínisti biður þjóðina afsökunar. Hann lék í syrpu auglýsinga fyrir KB-banka og þáði fé fyrir.

Þorsteinn Guðmundsson grínisti biður þjóðina afsökunar. Hann lék í syrpu auglýsinga fyrir KB-banka og þáði fé fyrir.

  • John Cleese. Leikarinn var á mála hjá KB-banka

    John Cleese. Leikarinn var á mála hjá KB-banka

Þorsteinn Guðmundsson leikari hefur samið lag þar sem hann biðst fyrirgefningar á hinu og þessu í lífi sínu. Sérstaklega tiltekur hann það að hann lék í frægri syrpu auglýsinga fyrir KB-banka. Að vísu segist hann hafa verið eins og hálfviti við það tækifæri en tiltekur ekki hversu mikið hann fékk greitt fyrir að fá almenning til að skipta við bankann.

Þorsteinn flytur í tengslum við djúpa afsökunarbeiðni sína lag sem hann kallar Fyrirgefið og afsakið. Þar syngur hann, talar og leikur undir á gítar. Þorsteinn er landsþekktur grínisti sem hefur afkomu sína af því að koma fram og skemmta fólki. Erfitt er að átta sig á því hversu mikil alvara er að baki fyrirgefningarbeiðninni.

Hann er ekki frægasti leikarinn sem KB-banki fékk til liðs við sig á tímum góðærisins. Breski leikarinn John Cleese, sem þekktur var fyrir leik sinn í Monty Python grínseríunni, fékk formúu fjár fyrir að leika í auglýsingum bankans og hefur ekki beðist afsökunar svo vitað sé.

Fyrirgefningarbeiðni Þorsteins má sjá á bloggi hans ef slóðinni hér að neðan er fylgt.

Fyrirgefningarbeiðni til þjóðarinnar



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.