Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Bandaríski leikarinn Jason Biggs varð fyrir óvenjulegri lífsreynslu á dögunum þegar Gíbraltar-api réðist á hann með kjafti og klóm. Biggs var staddur á Gíbraltar, sem tilheyrir Bretlandi, þegar apinn réðist á hann.
Að því er fram kemur á vef Telegraph varðist Biggs árás apans fimlega. Hann var í ferð með félaga sínum úr American Pie, leikaranum Eddie Kaye Thomas, í skóglendi þegar apinn lét til skarar skríða. Voru félagarnir að fagna því að tíu ár eru síðan fyrsta American Pie-myndin var frumsýnd.
Biggs slasaðist lítið en var mjög brugðið samkvæmt heimildum. Hann ákvað hinsvegar að enda fríið eftir uppákomuna og hélt heim til Bandaríkjanna.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu