Áfengisneysla Sigmundar ekki rædd
Mál Sigmundar var ekki rætt sérstaklega. Mynd DV.
Áfengisneysla Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingar, var ekki rætt sérstaklega á fundi forsætisnefndar í morgun. Ragnheiður Ríkharðsdóttir hafði fyrr í vikunni óskað eftir því að málið væri tekið upp á fundinum en svo var ekki gert.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.
Sigmundur baðst afsökunar við upphaf þingfundar í morgun en það gerði hann einnig í bloggfærslu í gær. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks sem einnig á sæti í forsætisnefnd, sagði á Morgunvakt Rásar 2 að þingmenn væru eins og óþekkir krakkar í skólastofu. Í sumar hafi keyrt um þverbak en forsætisnefnd ræddi meðal annars um aga þingmanna í þingsal í morgun. Mál Sigmundar var þó ekki rætt sérstaklega samkvæmt RÚV.
Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl 10:33
Sigmundur biðst afsökunar á þingi
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 19:29
Sigmundur „rauf trúnað sinn við þjóðina“
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 18:45
Sigmundur: Fékk mér tvö glös
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 17:36
Forseti Alþingis: Þingmenn bera ábyrgð á sjálfum sér
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 17:00
Hvernig komst Sigmundur milli staða?
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 13:58
Sigmundur sagði ósatt - viðurkennir áfengisnotkun
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 13:43
Sigmundur í felum
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 12:10
Sigmundur Ernir: Rétt að birta frétt um áfengismisnotkun prests
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 10:38
Sigmundur Ernir var í boði MP banka
Miðvikudagur 26. ágúst 2009 kl 07:00







