Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, þótti undarlegum í tilsvörum í ræðustól Alþingis á fimmtudagskvöld. Hann hafði þá verið á golfmóti og í kvöldverðarboði.
Veislugestir í kvöldverðarboði MP banka segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar þingmanns, sem síðar um kvöldið tók þátt í umræðum á Alþingi um Icesave-málið. Sjálfur hefur Sigmundur þrætt fyrir að hafa neytt áfengis.
Sigmundur Ernir, sem tók þátt í golfmóti MP banka fyrr um daginn, vakti athygli veislugesta.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Alþingi og alþingismönnum og mér fannst ástand þingmannsins vera allt að því óviðeigandi. Veislan var vegleg og það var boðið upp á hvítvín, rauðvín og bjór. Ég veitti því eftirtekt að þingmaðurinn hellti í sig rauðvíni,“ segir einn veislugestanna í samtali við DV.
„Ég kom heim til mín upp úr klukkan 10 um kvöldið. Þá kveikti ég á Sjónvarpinu og stillti á Alþingi. Mér krossbrá þegar ég sá að Sigmundur Ernir, sem skömmu áður var að hella í sig rauðvíni, var mættur í ræðustól. Ég var alveg gáttaður á þessu.“
Annar veislugestur sem DV ræddi við segist einnig hafa orðið vitni að áfengisneyslu Sigmundar.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrsti varaforseti Alþingis, hefur farið fram á að framkoma Sigmundar í ræðustóli þetta kvöld verði rædd í forsætisnefnd Alþingis þegar hún kemur saman næsta fimmtudag.
Hér sést myndband af ræðum Sigmundar sama kvöld og hann var í kvöldverðarboði MP banka:





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna