Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur viðurkennt að hafa neytt áfengis áður en hann fór í ræðustól Alþingis á fimmtudagskvöldið síðasta. Hann segir það hafa verið mistök að sinni hálfu að mæta í þingið eftir að hafa bragðað áfengi og biðst hann velvirðingar á því.
Sigmundur þvertók fyrir það í samtali við svæðisútvarp Austurlands í gær að hafa drukkið áfengi áður en hann fór í ræðustól.
Sigmundur birtir eftirfarandi færslu á heimasíðu sinni:
Að gefnu tilefni vil ég taka eftirfarandi fram:
Að kvöldi fimmtudagsins 20. ágúst sl. flutti ég ræðu á Alþingi um Icesave-málið. Svo sem sjá má af vefupptökum Alþingis var ræðan fyrirfram skrifuð og vel undirbúin. Fyrr um daginn hafði ég tekið þátt í golfmóti og setið kvöldverð að því loknu, þar sem ég fékk mér léttvín með matnum.
Áður en kvöldverði lauk yfirgaf ég samkvæmið til þess að vera við umræðu í þinginu. Ég flutti ræðu mína seint um kvöldið og tek fúslega fram að þar var ég þreyttur og reiður vegna linnulausra frammíkalla stjórnarandstöðu, en vil leggja áherslu á að ég kenndi ekki áhrifa af því víni sem ég hafði drukkið fyrr þennan dag. Þess vegna hef ég svarað því neitandi þegar það hefur verið borið upp á mig að ég hafi verið ölvaður þetta kvöld.
Eftir á að hyggja voru það engu að síður mistök af minni hálfu að mæta í þingið eftir að hafa bragðað áfengi. Á því biðst ég velvirðingar.
Að ósk eins þingmanns úr stjórnarandstöðu verður þetta mál til umfjöllunar í forsætisnefnd og mun ég bíða afgreiðslu hennar áður en ég tjái mig frekar um málið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna