ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Sigmundur „rauf trúnað sinn við þjóðina“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:29 › 26. ágúst 2009
Páll Ásgeir segir Sigmund Erni hafa rofið trúnað sinn við þjóðina og standi því án umboðs.

Páll Ásgeir segir Sigmund Erni hafa rofið trúnað sinn við þjóðina og standi því án umboðs. Mynd: Kristinn Magnússon

„Hversu fullur eða ekki fullur var Sigmundur? Þarna liggur efinn, bölvaður veri hann alla tíð,“ skrifar Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður á bloggsíðu sína í kvöld. Páll leiðir að því líkur að ef Sigmundur Ernir Rúnarsson væri leigubílstjóri, heilaskurðlæknir, flugmaður, fóstra eða bankagjaldkeri myndi víndrykkja í vinnunni eflaust kosta hann starfið.

„En hann er þingmaður. Það hefur enginn sagt bókstaflega að þingmenn eigi að vera allsgáðir í vinnunni en það er almennt reiknað með því að þeir séu það eins og aðrir,“ skrifar Páll sem síðan rifjar upp að þingmenn sverji þess eið að fylgja sannfæringu sinni.

Laug að þjóðinni
„Sigmundur laug að þjóðinni í samtali við RÚV þegar hann sagðist ekki hafa bragðað áfengi þennan dag. Svo svældi DV fram vitni sem kvaðst hafa séð Simma „hvolfa í sig“ áfengi fyrr um kvöldið. Þá dró okkar maður í land og segir eitthvað sem lítur út eins og sannleikurinn: ég drakk en var ekki fullur.“

Síðan staðhæfir Páll að á „gamla Íslandi“ hafi þingmenn oft farið kenndir í pontu, hafi blaðrað fullir í útvarpið eða vakið athygli í konungsveislum.

Rauf trúnað við þjóðina og stendur án umboðs
„Þetta vita margir og ég nenni ekki að rekja sannar og hálfsannar sögur um þjóðþekkta menn úr þeirri skúffu. Í vetur og vor töluðu margir um nýja Ísland og sú umræða skolaði meðal annars pótintátum eins og Sigmundi inn á þing. Þótt boðuð einkenni hins nýja Íslands sjáist ekki víða þá held ég að á nýja Íslandi séu þingmenn ekki fullir í vinnunni. Á nýja Íslandi ljúga menn ekki að þjóðinni í beinni útsendingu án þess að það dragi einhvern dilk á eftir sér. Simmi er sjálfsagt ágætur en hann rauf trúnað sinn við þjóðina með hálfsannleik, lýgi og undanbrögðum og er því sem stendur án umboðs,“ skrifar Páll að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.