ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Sigmundur í felum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:43 › 26. ágúst 2009
Blaðamaður DV sá Sigmund ganga um stofugólfið á heimili sínu talandi í síma. Þrátt fyrir það fékk blaðamaður þau skilaboð að hann væri ekki heima.

Blaðamaður DV sá Sigmund ganga um stofugólfið á heimili sínu talandi í síma. Þrátt fyrir það fékk blaðamaður þau skilaboð að hann væri ekki heima. Mynd DV

Eins og DV greinir frá í dag fullyrða veislugestir í kvöldverðarboði MP banka að þeir hafi orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið hélt þrumuræðu um Icesave-málið í ræðustóli Alþingis.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Sigmund Erni í gær. Þegar blaðamaður DV bankaði upp á heimili Sigmundar í Grafarvogi í gærkvöldi kom eiginkona Sigmundar til dyra. Hún svaraði því að Sigmundur væri ekki heima, þrátt fyrir að blaðamaður hafi örskömmu áður séð Sigmund ganga um stofugólfið talandi í síma. Þegar blaðamaður tjáði henni að hann hafi skömmu áður séð Sigmundi bregða fyrir í forstofunni vildi hún ekki kannast við það.

DV hefur áfram reynt að ná tali af Sigmundi í morgun en hann hefur ekki svarað ítrekuðum símhringinum blaðamanns.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.