ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Sigmundur: Fékk mér tvö glös

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:45 › 26. ágúst 2009
Sigmundur Ernir fékk sér tvö glas af víni á fimmtudaginn að eigin sögn.

Sigmundur Ernir fékk sér tvö glas af víni á fimmtudaginn að eigin sögn.

Sigmundur Ernir kveðst hafa fengið sér tvö vínglös í kvöldverðarboði MP Banka á fimmtudaginn áður en hann fór í pontu á Alþingi. Hann segir son sinn hafa skutlað sér úr Grafarholti niður á Austurvöll og kveðst vera í viðskiptum við MP Banka og því hafi hann sótt golfmót þeirra og þegið veitingar að því loknu.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem fréttastofa kvaðst hafa náð tali af Sigmundi í dag. Sigmundur neitaði þó að koma í viðtal vegna málsins. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í gær og dag hefur DV ekki náð tali af Sigmundi til að ræða málið sem greint var frá í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.