Sigmundur Ernir spilaði golf og borðaði kvöldverð í boði MP banka á sama tíma og umræða um eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar; Icesave-málið fór fram á Alþingi. Mynd DV
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók þátt í golfmóti MP banka á Grafarholtsvelli síðastliðinn fimmtudag, auk þess sem hann var við kvöldverðarboð bankans síðar um kvöldið. Veislugestir í kvöldverðarboðinu segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar, sem síðar sama kvöld hélt þrumuræðu um Icesave- málið í ræðustól Alþingis.
Kolbrún Ásgeirsdóttir, forstöðumaður sölu-og markaðssviðs MP banka, segir að mótið sé árlegt og þeim sem taki þátt sé boðið. Sigmundur Ernir spilaði því golf og borðaði kvöldverð í boði bankans. Á myndbandi af ræðum Sigmundar sést að hann gleymir ítrekað spurningum og verður fyrir frammíköllum stjórnarandstöðunnar af þeim sökum.
Aðspurð segir Kolbrún að Sigmundi hafi verið boðið á golfmótið sem einstaklingi. Ástæðan sé alls ekki sú að hann sé þingmaður.
Í samtali við svæðisútvarp Austurlands þvertók Sigmundur Ernir fyrir að hann hefði bragðað áfengi áður en hann fór í umræður á Alþingi. Einn gestanna í veislu MP banka um kvöldið segist hins vegar hafa séð Sigmund Erni þar sem hann var orðinn æði slompaður að sjá.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Alþingi og alþingismönnum og mér fannst ástand þingmannsins vera allt að því óviðeigandi. Veislan var vegleg og það var boðið upp á hvítvín, rauðvín og bjór. Ég veitti því eftirtekt að þingmaðurinn hellti í sig rauðvíni,“ segir veislugesturinn sem að sinni vill ekki láta nafns síns getið.
Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk frá veitingasölu GR í Grafarholti var vissulega boðið upp á óáfenga drykki í veislunni, en ekkert óáfengt rauðvín hafi verið í boði þegar blaðamaður spurðist sérstaklega fyrir um það.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna