ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Sigmundur Ernir: Rétt að birta frétt um áfengismisnotkun prests

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:10 › 26. ágúst 2009
Sigmundur líkti áfengismisnotkun þjóðgarðsvarðarins við Bermúdaskál Davíðs Oddssonar.

Sigmundur líkti áfengismisnotkun þjóðgarðsvarðarins við Bermúdaskál Davíðs Oddssonar. Mynd DV

„Við erum með slíkan urmul heimilda á bak við þessa frétt að í sjálfu sér væri það efni í mikinn og langvarandi fréttaflutning, en við ætlum að láta hér við sitja nema tilefni gefist til," sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson í samtali við Helgarpóstinn þann 7. nóvember 1996. Þá varði Sigmundur Ernir þá ákvörðun Stöðvar 2 að birta frétt um meinta áfengismisnotkun þjóðgarðsvarðarins á Þingvöllum.

Eins og DV greinir frá í dag segjast veislugestir í kvöldverðarboði MP banka hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið hélt þrumuræðu um Icesave-málið í ræðustóli Alþingis.

Árið 1996 birti fréttastofa Stöðvar 2 frétt um meinta áfengismisnotkun prests og þjóðgarðsvarðarins á Þingvöllum sem hafði sagt af sér embætti skömmu áður. Fréttin vakti mikil viðbrögð og gagnrýndu hana margir, meðal annarra Kristín Ástgeirsdóttir, þáverandi þingkona Kvennalista, en fréttin varð landsfundarfulltrúum flokksins tilefni til ályktunar.

En í samtali við Helgarpóstinn árið 1996 varði Sigmundur Ernir fréttaflutninginn með kjafti og klóm. Hann lagði mál Hönnu Maríu að jöfnu við Bermúdaskál Davíðs Oddssonar og sagði að auki að sú staðreynd skipti miklu að Hanna skipar eitt virðulegasta embætti Þjóðkirkjunnar á helgasta stað þjóðarinnar, sem laðar til sín fleiri ferðamenn en nokkur annar staður.

Þótti mörgum þarna ólíku saman að jafna og benti einn ónafngreindur viðmælandi Helgarpóstsins á að það hefði aldrei þótt fréttnæmt þó að mun hærra settir embættismenn en þjóðgarðsvörðurinn hefðu gerst „sekir" um fyllerí á þingum erlendis, hvað þá á Alþingi Íslendinga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.