ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Hvernig komst Sigmundur milli staða?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:00 › 26. ágúst 2009
10,27 kílómetrar er sú vegalengd sem Sigmundur hefur þurft að ferðast.

10,27 kílómetrar er sú vegalengd sem Sigmundur hefur þurft að ferðast. Google Earth

Eins og fram hefur komið á DV.is í dag gekkst Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, við því að hafa sagt ósatt um áfengisdrykkju sína á fimmtudagskvöldið áður en hann steig í pontu á Alþingi. Nokkrum spurningum er þó enn ósvarað í málinu. Til dæmis hvernig hann komst frá Golfklúbbi Reykjavíkur í Grafarholti niður á Alþingi á Austurvelli.

Með aðstoð Google Earth forritsins reiknaði DV út vegalengd þess ferðalags sem Sigmundur Ernir er líklegur til að hafa farið, hafi hann haldið beint á Alþingi eftir kvöldverðarboð MP Banka að golfmótinu loknu hið örlagaríka kvöld. Samkvæmt þeim útreikningum hefur þingmaðurinn þurft að aka rúmlega tíu kílómetra úr Grafarholti niður á Austurvöll. Þeirri spurningu er þó enn ósvarað hvaða ferðamáta Sigmundur notaði. Hvort hann hafi ekið eftir víndrykkjuna, látið sækja sig eða fengið far með öðrum.

„Ég veitti því eftirtekt að þingmaðurinn hellti í sig rauðvíni,“ segir einn veislugestanna í samtali við DV.

Í yfirlýsingu sem Sigmundur sendi fjölmiðlum í dag segir hann um áfengisneysluna:

„Fyrr um daginn hafði ég tekið þátt í golfmóti og setið kvöldverð að því loknu, þar sem ég fékk mér léttvín með matnum. Áður en kvöldverði lauk yfirgaf ég samkvæmið til þess að vera við umræðu í þinginu.“

Sigmundur kveðst í yfirlýsingu sinni ekki ætla að tjá sig frekar um málið fyrr en forsætisnefnd hefur tekið það fyrir á morgun.

Fréttir af málinu sem birst hafa á DV.is í dag má sjá með því að smella á hlekkinn Sigmundur Ernir hér að neðan.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.