„Hver þingmaður ber ábyrgð á sjálfum sér. Hlutverk forseta er samkvæmt þingsköpum að allt fari fram með góðri reglu í þingsal,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. DV spurði hvort einhverjar siðarlegur þingmanna næðu til annarsvegar að þiggja boð banka um að taka þátt í golfmóti og hins vegar að stíga í pontu eftir að hafa neytt áfengis.
Hún vill þó ekki nefna einn þingmann umfram annan síðastliðið fimmtudagskvöld þar sem mikill galsi var í salnum.
„Ég var forseti þetta kvöld og það var mikill galsi í salnum og ég get ekki verið að nefna einn þingmann umfram annan þar. Það var mikill hávaði og ég þurfti ítrekað að minna fólk á að gefa hljóð. Þetta gerist stundum í þinginu þegar menn hafa verið mjög lengi að störfum og eru orðnir út keyrðir af þreytu. Þá skapast þessi stemning,“ segir Ásta en mikið hefur verið fjallað um umræddan galsa í þinginu fimmtudagskvöldið sem Sigmundur Ernir hélt þrumuræðu sína eftir að hafa neytt áfengis í kvöldverðarboði MP Banka.
Kveldúlfur í mannskapnum
„Það var mikið um frammíköll og mér fannst þau fara úr böndunum og ég gerði athugasemdir við það,“ segir Ásta. Aðspurð hvort hún hefði getað gert meira til að grípa í taumana segir Ásta að hún hafi ítrekað áminnt þingmenn um að hafa hljóð og að auki lokið fundi fyrr en hún hafði ætlað sér „vegna þess að ég taldi að það væri kominn það mikill kveldúlfur í mannskapinn,“ eins og hún orðar þar.
Aðspurð hvort framganga Sigmundar, sem verður tekin fyrir í forsætisnefnd á morgun, verði tekin fyrir innan Samfylkingarinnar kveðst Ásta ekki geta svarað fyrir það.
„Auðvitað vonar maður sem forseti þingsins að menn beri þá virðingu fyrir sínum vinnustað að þar fari allt fram eins vel og unnt er.“
Aðspurð hún teldi Sigmund hafa sýnt af sér skort á virðingu á fimmtudagskvöldið segir Ásta að hún geti ekki dæmt um það.
„Mér fannst vera galsi í mannskapnum og get ekki farið að nefna einn umfram aðra. Það féllu þarna orð sem voru þeim sem þau mæltu ekki til sóma og ég gerði athugasemdir við talsmáta þingmanna,“ segir Ásta að lokum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna