Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, er meðal þeirra sem eru til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og skattrannsóknarstjóra.
Fjárskortur veldur nú töfum á rannsókn á meintum efnahagsbrotum útrásarvíkinga. Skorið hefur verið niður hjá embætti skattrannsóknarstjóra á þessu ári og efnahagsbrotadeildin glímir við manneklu. Þessi frestun á rannsókn málanna getur haft í för með sér að refsing verði vægari en ella, ef til hennar kemur yfirleitt.
„Við stöndum frammi fyrir því að það voru skertar fjárheimildir fyrir þetta ár sem nú er að líða. Það er staðan,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, er í svipaðri stöðu. „Starfsfólki hjá okkur hefur frá áramótum verið fækkað um þrjár stöður.“
Á síðustu árum hefur það nokkuð oft komið upp að sakborningar hafa hlotið mildari dóma vegna þess að mál hafa tafist við rannsókn. Töfin hefur haft þau áhrif að sakborningar sem hefðu fengið fangelsisdóma sluppu eða dómar yfir þeim voru mildaðir.






Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði