ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Icesave-eignirnar gufa upp hjá auðmönnum

03:01 › 25. ágúst 2009
Viðskiptafélagarnir Magnús Þorsteinsson og Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, á góðri stund. Magnús skuldar Landsbankanum 24 milljarða og getur líklega borgað fæsta þeirra.

Viðskiptafélagarnir Magnús Þorsteinsson og Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, á góðri stund. Magnús skuldar Landsbankanum 24 milljarða og getur líklega borgað fæsta þeirra.

  • Magnús Kristinsson var langt kominn með samkomulag við Landsbanka um að afskrifa hátt á fimmta tug milljarða króna lán.

    Magnús Kristinsson var langt kominn með samkomulag við Landsbanka um að afskrifa hátt á fimmta tug milljarða króna lán.

  • Fjallað er nánar um málið í DV í dag.

    Fjallað er nánar um málið í DV í dag.

Áætla má að eignir gamla Landsbankans, sem nota á til að greiða niður Icesave-skuldirnar, rýrni um að minnsta kosti um 60 milljarða króna í ljósi nýlegra frétta um afskriftir á lánum sem skilanefnd Landsbankans þarf að framkvæma hjá tveimur viðskiptamönnum bankans.

Í síðustu viku greindi DV frá samkomulagi sem langt var komið á milli skilanefndar Landsbankans og Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, sem kveður á um að skilanefndin þurfi að afskrifa á fimmta tug milljarða króna af skuldum Magnúsar og eignarhaldsfélaga hans við bankann.

Í dag greinir DV svo frá því að skuldir Magnúsar Þorsteinssonar við gamla Landsbankann nemi um 24 milljörðum króna og að afar líklegt sé að Magnús eigi litlar eignir upp í kröfurnar - Magnús var úrskurðaður gjaldþrota fyrr í sumar.

Séu þessar afskriftir settar í samhengi við áætlað verðmæti eignasafns Landsbankans sést að ef hægt hefði verið að fá þessar kröfur endurheimtar hefði það getað aukið virði eigna bankans sem metnar eru á 1.100 milljarða króna, tala sem byggð er á mati skilanefndar Landsbankans frá því í lok apríl, um fimm prósent. Slíkar afskriftir á skuldum þessara tveggja viðskiptamanna rýra því virði eignasafnsins um meira en 5 prósent. Þar með hverfa 60 milljarðar sem annars hefði verið hægt að nota til að greiða niður Icesave.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?