Talið er að foreldrar Ryan Jenkins, sem eftirlýstur er fyrir að hafa myrt fyrirsætuna Jasmine Fiore og troðið líki hennar í ferðatösku og kastað því í ruslagám, séu að hylma yfir með syni sínu sem er á flótta undan lögreglunni.
Vefsíðan TMZ hefur eftir lögreglunni í Los Angeles að lögreglan hafi ástæðu til að ætla að vellauðugir foreldrar Jenkins séu að fela son sinn. Þau eru skilin og búa í sitthvorri borginni í Kanada. Jenkins er talinn hafa flúið þangað eftir að hann myrti Fiore, að því er talið er.
Heimildir TMZ herma að sjónarvottar hafi séð Jenkins fara yfir landamærin til Kanada og hann hafi virst yfirvegaður og með allt á hreinu.
Eins og DV.is hefur greint frá undanfarna daga fannst lík Fiore í ruslagámi í Orange County. Því hafði verið troðið í ferðatösku og fingurnir skornir af því sem og allar tennur dregnar úr. Lögreglan bar kennsl á líkið með framleiðslunúmeri silíkonígræðslna stúlkunnar.
Eldri fréttir af málinu má lesa með því að smella á hlekkinn hér að neðan: „Lík fyrirsætu í ferðatösku.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung