ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Silíkonígræðslan hjálpaði lögreglunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:00 › 22. ágúst 2009
Jasmine Fiore og maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt hana og hent líkinu í ruslið.

Jasmine Fiore og maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt hana og hent líkinu í ruslið.

Lögreglan í Los Angeles og Orange County beitti heldur óvenjulegum aðferðum við að bera kennsl á lík Jasmine Fiore sem myrt var á hrottafengin hátt og skilin eftir í ferðatösku í ruslagámi í Orange County um síðustu helgi. Eins og DV.is hefur greint frá voru allar tennur dregnar úr henni og fingur hennar skornir af. Lögreglan bar kennsl á líkið með framleiðslunúmeri silíkonígræðslu hennar.

„Við höfum reyndar oft þurft að bera kennsl á lík með þessum hætti,“ segir talsmaður ríkissaksóknarans í Orange County, Susan Schroeder í samtali við vefútgáfu People. Hún segir að silíkonígræðslur séu með framleiðslunúmer þar sem stundum þurfi að innkalla þær ef galli finnst.

Umfangsmikil leit er nú gerð að Ryan Jenkins sem nú er á flótta en hann er talinn er hafa orðið Fiore að bana. Talið er að hann sé flúinn til heimalandsins í Kanada.

DV.is hefur fylgst með málinu undanfarna daga og geta lesendur nú kynnt sér fyrri fréttir af málinu með því að smella á hlekkinn „Lík fyrirsætu í ferðatösku“ hér að neðan.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.