Um það leyti sem Magnús Kristinsson tók við skipinu Bergey í ágúst 2007 sagði hann í viðtali við DV, að allt sem hann gerði gengi upp. Þetta var skömmu áður en byrjaði að halla verulega undan fæti hjá Gnúpi, fjárfestingafélagi Magnúsar. Það þótti nokkur bjartsýni hjá Magnúsi að kaupa skipið á þeim tíma þar sem þorskkvóti á landsvísu hafði þá nýverið verið skertur. Magnús var hins vegar nokkuð brattur.
„Ég er þannig gerður að þegar ég tekst á við eitthvað fer ég ekki út í það nema að ég ætli að láta það ganga upp. Ef eitthvað gengur ekki upp vinn ég úr því þannig að niðurstaðan verði mér viðunandi. Að því leytinu til gengur allt upp sem ég geri,“ sagði Magnús en viðmælendum DV ber öllum saman um að Magnús sé afar duglegur og öflugur maður.
Á þessum tíma var viðskiptaveldi Magnúsar orðið stórt. Hann var stórtækur kvótaeigandi, hluthafi í FL-Group og Kaupþingi, eigandi Toyota-umboðsins og fjölda minni fyrirtækja auk þess sem hann hafði keypt sér þyrlu til að fljúga á milli lands og Eyja. Magnús flaug því hátt á þessum tíma og velgengni hans virtust lítil takmörk sett. Í grein í Sirkus yfir ríkustu menn Íslands í maí 2007 var Magnús í 13. og 14. sæti yfir ríkustu menn landsins. Auður hans var metinn á 40 milljarða króna og var sagt í greininni að hann malaði „bara gull þessa dagana“.
Fljótlega eftir þetta byrjaði hins vegar að halla undan fæti hjá Magnúsi: Kannski náði trú Magnúsar á sjálfan sig hámarki þegar hann lét þessi orð falla. Sennilega hefur Magnús ofmetið sig á þessum tíma enda hafði hann grætt mikla peninga á hlutabréfaviðskiptum á árunum á undan og hélt líklega að uppgangur sinn ætti sér engin takmörk. Nú er veldi hans í rúst og hann sjuldar 50 milljarða í Landsbankanum án þess að eignir að neinu gagni komi á móti.
Lesa má ítarlega nærmynd af risi og falli Magnúsar Kristinssonar í helgarblaði DV



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
