„Þetta er allt mjög hræðilegt en okkur Íslendingum líkt,“ segir Hallgrímur Helgason um það ástand sem myndast hefur hér á landi út af bankahruninu og afleiðingum þess. „Við erum stundum eins og sagt var í gamla daga „Glaður aumingi í helgarfríi“. Þar sem allt er keyrt í botn, allir voða kátir og bjartsýnir, og svo fljúgum við beint á hausinn.“
Hallgrímur undrar sig á því að menn séu enn að tala um það að íslenska efnahagshrunið hafi verið orsök utanaðkomandi aðstæðna en ekki vegna galla hér heima fyrir. „Það var nú bara síðast í þessari viku sem ég heyrði Geir Haarde segja að þetta hefði gerst út af alþjóðakreppunni. Hún gerði auðvitað sitt en á móti kemur að fyllibyttan segir náttúrlega að það hafi bara verið óheppni að svellbunkinn skuli hafa verið þarna á stéttinni þegar hann kom út af barnum. Sem varð til þess að hann datt á hausinn og braut alla limi. Þetta var náttúrlega bara algjör óheppni.
Við vorum búin að vinna fyrir þessu sjálf með okkar barnslegu útrásargleði og bjartsýni. Þetta er auðvitað stórt sjokk fyrir litla þjóð en ég vona að við getum lært af þessu og þroskast.“
Þetta er meðal þess sem kemur fram í opinskáu viðtali við Hallgrím í helgarblaði DV . Hann segir skilnaðinn og það sem fylgdi í kjölfarið nokkrar erfiðustu stundir lífs hans. En á eftir skilnaði og byltingu kom ást þegar Hallgrímur kynntist Þorgerði Öglu Magnúsdóttur. Ást sem færði hann meðal annars í sjálfstæðisbrúðkaup ársins á Flateyri. Þar sem Hallgrímur lenti enn og aftur upp á kant við sjálfstæðismann sem endaði með því að hattinum hans var stolið.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
