Magnús Kristinsson fjármagnaði veldi sitt með illa tryggðum lánum. Hann er umdeildur í Vestmannaeyjum fyrir þyrlukaupin og þykir mikill gassi sem fer sínar eigin leiðir. Sagan af risi og falli Magnúsar er dæmi um það æði sem ríkti í íslensku viðskiptalífi á liðnum árum. Hann þykir lítið vit hafa á hlutabréfaviðskiptum og er sagður hafa gert mistök með því að stunda þau af of miklu kappi.
Frétt DV um fyrirhugaðar afskriftir á um 50 milljarða króna skuldum útgerðarmannsins Magnúsar Kristinssonar og eignarhaldsfélaga hans við gamla Landsbankann vakti mikla athygli í vikunni. Skuldastaða Magnúsar við bankann segir meira en mörg orð um lánastefnu Landsbanka Íslands á síðustu árum því Magnús virðist hafa fengið stóran hluta þessara lána í bankanum án þess að leggja fram haldgóð veð fyrir lánunum.
Magnús er í nærmynd í helgarblaði DV sem kemur út í dag.
Einn af viðmælendum DV orðar þetta sem svo að Magnús sé svo ákveðinn og með svo mikið sjálfstraust að hann hafi skoðanir á hlutum sem hann viti ekkert um. Viðmælandinn segir að þetta eigi við um viðskiptasögu Magnúsar eftir að hann byrjaði að fjárfesta í hlutabréfum af krafti. „Þegar hann er á heimavelli, sem er í útgerðinni, gengur þetta upp því þá þekkir hann hvern einasta bolta um borð. En svo reynir hann að ganga fram af sömu í áræðni og sjálfsöryggi í hlutabréfaviðskiptum sem hann veit sáralítið um... Svona menn eins og Magnús urðu sjálfum sér verstir í góðærinu þegar offramboð var á lánsfé hér á landi. Það var hægt að fá lánað fyrir næstum því öllu,“ segir viðmælandi DV sem þekkir vel til í íslenska bankakerfinu.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
