ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Fjarlægði tennur og fingur fyrirsætunnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:09 › 21. ágúst 2009
Jasmine Fiore og Ryan Jenkins.

Jasmine Fiore og Ryan Jenkins.

Ryan Jenkins, sem lögreglan í Los Angeles leitar nú í tengslum við hrottafengið morð á fyrirsætunni fyrrverandi Jasmine Fiore, er nú á flótta undan lögreglunni. Talið er að hann sé farinn yfir landamærin til heimalands síns í Kanda. Lögreglan hefur birt ógnvænlegar upplýsingar um morðið sem Jenkins er grunaður um að hafa framið.

Lík Fiore fannst í ruslagám í borginni Buena Park í Orange County á laugardagsmorgun. Það var maður sem var að róta í gámnum í leit að flöskum og dósum sem fann líkið. Því hafði verið troðið í ferðatösku og kastað í gámin.

Fjarlægði fingur og tennur Fiore
Síðast sást til fórnarlambsins, Jasmine Fiore, að morgni föstudags á heimili hennar í Los Angeles. Jenkins tilkynnti um hvarf hennar á laugardagskvöldið Hann fylgdi Fiore í samkvæmi sem þau sóttu á fimmtudagskvöldið áður en hún hvarf. Og eftir að kennsl voru borin á líkið sem fannst í Orange County varð Jenkins strax grunaður um ódæðið.

Lögreglan sagði í gærkvöldi að Jenkins hefði fjarlægt tennur og fingur hinnar 28 ára gömlu Fiore, en talið er að hann hafi gert það svo erfiðara væri að bera kennsl á líkið.

Fjölskylda og vinir Jasmine Fiore héldu blaðamannafund í gær þar sem þau grábáðu fólk um að hylma ekki yfir með Jenkins í Kanada.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.