„Skilnaður, bylting og rómantík blandaðist allt saman,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur sem hefur gengið í gegnum margt á þessu stormasama ári, 2009. Nýlentur eftir Afríkuför fékk hann þau tíðindi að þáverandi eiginkona hans Oddný Sturludóttir vildi skilnað. Á sama tíma lá bylting í loftinu á Íslandi og í tilfinningarokinu dróst Hallgrímur inn í miðja búsáhaldabyltinguna.
Þátttaka hans náði hámarki þegar hann barði á bíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra og öskraði á hann að segja af sér. Hallgrímur hafði barið á valdstjórninni svo árum skipti og bent á misbeitingu valds með blaðagreinum sem meðal annars fæddu af sér hugtakið Bláu höndina. En árangurinn var lítill fyrr en hann barði á rúðu Geirs þennan dag.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í opinskáu viðtali við Hallgrím í helgarblaði DV sem kemur út í dag. Hann segir skilnaðinn og það sem fylgdi í kjölfarið nokkrar erfiðustu stundir lífs hans. En á eftir skilnaði og byltingu kom ást þegar Hallgrímur kynntist Þorgerði Öglu Magnúsdóttur. Ást sem færði hann meðal annars í sjálfstæðisbrúðkaup ársins á Flateyri. Þar sem Hallgrímur lenti enn og aftur upp á kant við sjálfstæðismann sem endaði með því að hattinum hans var stolið.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“