ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Tók sparifé sitt út hjá Kaupþingi

09:47 › 2. ágúst 2009
Grímur segist hafa tekið peningana sína út hjá Kaupþingi í gærkvöldi.

Grímur segist hafa tekið peningana sína út hjá Kaupþingi í gærkvöldi. Mynd DV

Grímur Atlason, sveitastjóri Dalabyggðar og fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur, tók út peningana sína hjá Kaupþingi í gær vegna lögbannsins sem bankinn fékk í gegn hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Málið vakti strax hörð viðbrögð meðal bloggara og virtust fæstir vera á bandi Kaupþings.

"Fílabeinsturninn er ógurlegur. Skömmin er algjör. 1500 milljarðar lánaðir 10 stærstu viðskiptavinunum. Lánabókin opnuð þrátt fyrir bankaleynd. Litlu-Símamennirnir leynast víða. Ég fagna þeim. Vondandi eru þeir líka innan skilanefnda Glitnis og Landsbankans," sagði Grímur á bloggsíðu sinni í gærkvöldi.

Hann vill að þingheimur komi saman strax á morgun og setji lög sem aflétta bankaleynd. "Ég tók út peningana mína í Kaupþingi í kvöld. Stjórn bankans ætti að skammst sín!," segir Grímur, allt annað en sáttur á bloggsíðu sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.