ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

„Skúrkarnir heimta bankaleynd”

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:15 › 2. ágúst 2009

„Stóra Bankaránið sýnir, að nauðsynlegt er, að Alþingi afnemi lög um bankaleynd. Hún er ekki viðskiptatæki, heldur tæki til að halda bankaglæpum leyndum. Það eru skúrkarnir, sem heimta bankaleyndina,” segir Jónas Kristjánsson, einn vinsælasti bloggari landsins um Kaupþingsmálið.

Jónas vill að lög um bankaleynd verði afnumin en lögmenn skilanefndar gamla Kaupþings og Nýja Kaupþings fengu í gær lögbann á umfjöllun Ríkisútvarpsins um gögn frá lánafundi bankans frá því í september á síðasta ári.

„Viðbrögð glæpalýðs Kaupþings sýna markmið bankaleyndar. Hún er lögbundin til að halda glæpum peningastofnana leyndum. Uppljóstranir www.WikiLeaks.org um Stóra Bankaránið 25. september í fyrra sýna spillingu allrar spillingar. Lög um bankaleynd reyna að vernda glæpabanka fyrir slíkum fréttum. Tókst ekki, www.VikiLeaks.org gerði bara grín að Finni Sveinbjörnssyni bankastjóra, er hann reyndi að stöðva lekann.”



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.