ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Skotinn til bana út af reykingabanni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:35 › 2. ágúst 2009
  • Veitingahúsaeigandinn var skotinn til bana fyrir afskiptasemina.

    Veitingahúsaeigandinn var skotinn til bana fyrir afskiptasemina.Mynd Photos

Veitingahúsaeigandi í Tyrklandi var skotinn til bana þegar hann reyndi að fá hóp viðskiptavina sinna til að drepa í sígarettum sem þeir höfðu kveikt sér í. Þann nítjánda júlí sl. tóku gildi ný lög sem banna reykingar á veitingahúsum í Tyrklandi.

Bannið hefur lagst misvel í Tyrki, sem eru meðal mestu reykingamanna heims. Talið er að helmingur Tyrkja á aldrinum 15 til 49 ára reyki. Eftir að eigandinn, sem hét Hidir Karayigit, reyndi að fá mennina til að drepa í brutust út slagsmál. Fór svo að hann var skotinn fjórum skotum fyrir afskiptasemina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.