ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Samson Björgólfsfeðga fékk 22 milljarða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:46 › 2. ágúst 2009
Samson fékk 22 milljarða að láni frá Kaupþingi.

Samson fékk 22 milljarða að láni frá Kaupþingi. Mynd DV

Samson, eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga, fékk 22 milljarða króna í lán frá Kaupþingi samkvæmt leynigögnum frá því í september á síðasta ári. Samson er nú komið í gjaldþrot og er talið að heildarskúlir þrotabúsins nemi 80 milljörðum króna. Félagið fór í greiðslustöðvun eftir yfirtöku ríkisins á Landsbankanum.

Samkvæmt gögnunum var lánið veitt til fjögurra dótturfyrirtækja Samson; Empennage Inc (11,7 milljarðar), Samson eignarhaldsféags ehf. (7 milljarðar), Rauðsvíkur ehf. (3,5 milljarðar), og Samson Properties (143 milljónir). Rétt er að geta þess að allar tölur eru miðaðar við gengi evru á föstudag en lánið er umtalsvert lægra ef mið er tekið af gengi evru þann 25. september á síðasta ári.

Lán vegna Empennage Inc. var tekið til að fjármagna kaup í Landsbankanum en Landsbankinn sjálfur ábyrgist lánið samkvæmt gögnunum. Fjármagnið var notað til að kaupa 244 milljónir hluta í Landsbankanum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.