„Ég er undrandi á þeim orðum Hrannars B. Arnarsonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra, að Eva Joly eigi að halda sig við sín ráðgjafastörf fyrir sérstakan saksóknara en láta öðrum eftir efnahagsmálin. Þessi orð mætti allt eins heimfæra upp á Hrannar sjálfan - þ.e. að hann ætti að láta pólitíkusunum eftir að vinna sitt starf og sinna sjálfur þeim viðfangsefnum sem honum er trúað fyrir.”
Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmann Jóhönnu Sigurðardótur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. Eins og DV greindi frá í morgun gagnrýndi Hrannar orð Evu Joly, sem skrifaði greinar sem birtust í dagblöðum í fjórum dagblöðum í gær.
„Dettur Evu í hug að þessi grein auki traust á Íslandi erlendis ? Veit hún ekki að megnið af erlendu lánunum (eiginlega allt nema Icesave) er til að styrkja gjaldeyrisforðann og þar myndast eign á móti ? Held hún ætti að halda sig við ráðgjöf við sérstaka saksóknarann og láta aðra um efnahagsmálin,“ sagði Hrannar á Facebook-síðu sinni sem er opin öllum.
Eva Joly gagnrýndi meðal annars Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, norrænar þjóðir, Evrópusambandið, Breta og Hollendinga og sagði að Íslendingar réðu ekki við skuldir sínar.
Ólína segir að Eva Joly sé kona með mikla yfirsýn og reynslu og hún sé vissulega stjórnmaálamaður - nýkörin sem þingmaður á Evrópuþinginu. Ólína bætir þó við að skrif hennar séu umhugsunarefni.
„Ég tel mikils um vert að kynnst sjónarmiðum Evu Joly til bankahrunsins og stöðu okkar á alþjóðavettvangi. Ég verð að viðurkenna að ég er þungt hugsi yfir ákveðnum atriðum sem fram koma í grein hennar. En hvort sem ég er sammála mati hennar á stöðunni eða ekki - og þó mér hafi áður fundist hún mætti bera sig öðruvísi að við að koma inn í umræðuna - þá er eitt alveg ljóst: Þessi kona stendur með okkur Íslendingum og vill vekja athygli á málstað okkar. Það gerir hún af einurð og ekki síður af hlýhug í garð þeirrar "grandvöru og elskulegu þjóðar" sem hún segir okkur vera. Mér þótti vænt um að finna hugarþel hennar í okkar garð, og ég er sannfærð um að orð hennar eru betur sögð en ósögð,” segir Ólína á bloggsíðu sinni.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“