Í helgarblaði DV rifja nokkrir þjóðþekktir Íslendingar upp skemmtilegar sögur frá eftirminnilegustu verslunarmannahelgunum. Einn þeirra er tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson sem segir frá skítaklepra sem gerði honum lífið leitt.
"Einu sinni var ég að spila með hljómsveitinni Eymenn á þjóðhátíð fyrir mörgum árum. Við vorum að spila í skúr þarna eins og tíðkaðist og ég var gítar - og orgelleikari. Síðan gerist það að ég er alveg í spreng og þarf að pissa. Ég bregð mér út fyrir og svo þegar ég kem aftur fer að gjósa upp þessi þvílíka mannaskítslykt. Við fórum að spá í því hvaða ólykt þetta væri og skildum ekkert í þessu. Það lá hreinlega við að við ældum allir en við létum okkur hafa þetta og kláruðum tónleikana. Ég fór svo bara heim í háttinn með kærustunni.
Eftir þjóðhátíð fór ég svo í bíó með henni og klæddi mig í sömu skó og ég hafði verið í þarna um kvöldið. Þetta voru svona háhælaðir skór eins og hljómsveitartöffarar klæddust á þessum tíma. Í bíóinu byrjaði svo þessi mannaskítslykt að gjósa upp aftur og ég hélt að einhver þarna væri búinn að skíta á sig. Svo þegar fólk fór að forða sér frá okkur fóru að renna á mig tvær grímur. Ég ákvað að kíkja undir skóinn og sá að það var var skítaklepri fastur á milli hælsins og sólans. Þá hafði einhver skitið þarna fyrir utan um kvöldið og ég stigið í skítinn í myrkrinu."





Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Madonna mætti með hersveit
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Scarlett og nýi kærastinn