ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Ísland þarf betri kynningu erlendis

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:15 › 2. ágúst 2009
Eva Joly skrifaði grein í dagblöð í fjórum löndum í gær.

Eva Joly skrifaði grein í dagblöð í fjórum löndum í gær. Mynd DV

Atli Rúnar Halldórsson, ráðgjafi í kynningarmálum, segir að forráðamenn ríkisstjórnarinnar eigi að fara til fundar við ráðamenn í Bretlandi og halda blaðamannafundi í kjölfarið. Segir Atli að með greinarskrifum sínum hafi Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, tekið ómakið af stjórnvöldum og haldið á lofti málstað Íslands.

Þetta sagði Atli í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

Eva Joly skrifaði grein sem birt var í dagblöðum í fjórum löndum í gær. Þar gagnrýndi hún Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, norrænar þjóðir, Evrópusambandið, Breta og Hollendinga. Atli sagði að það skipti miklu máli að upplýsa erlendar þjóðir um stöðu Íslands. Hinsvagar hafi lítið farið fyrir kynningu íslenskra stjórnvalda á málstað Íslands á erlendri grund.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.