Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, segir að stórfelldar lánveitingar Kaupþings til tengdra aðila í eigendahópi séu ekki ólöglegar. Hann segir að lánveitingarnar hafi verið innan löglegra marka þó að þær upplýsingar sem finna má á WikiLeaks.org bendi til annars.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Hreiðar sagðist einnig telja að eðlilegar tryggingar hafi verið fyrir háum lánum til fyrirtækjahóps Existu, sem jafnframt var stærsti eigandi bankans. Exista fékk 255 milljarða króna lánaða hjá Kaupþingi samkvæmt umræddum gögnum frá lánafundi Kaupþings.
Hreiðar var kallaður til yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara vegna meintra brota í starfi. Í hádegisfréttum RÚV sagðist hann ekki telja neinar líkur á að hann verði ákærður vegna meintra brota í starfi sem forstjóri Kaupþings.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara