ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Hrannar sendir Evu Joly tóninn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:37 › 2. ágúst 2009
Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur sendir Evu Joly tóninn á Facebook-síðu sinni.

Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur sendir Evu Joly tóninn á Facebook-síðu sinni. Mynd DV

„Dettur Evu í hug að þessi grein auki traust á Íslandi erlendis ? Veit hún ekki að megnið af erlendu lánunum (eiginlega allt nema Icesave) er til að styrkja gjaldeyrisforðann og þar myndast eign á móti ? Held hún ætti að halda sig við ráðgjöf við sérstaka saksóknarann og láta aðra um efnahagsmálin.“

Þetta sagði Hrannar Björn Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur á Facebook-síðu sinni í gær. Hrannar skrifaði þessa athugasemd við frétt dv.is um grein Evu Joly, sem vakti mikla athygli í gær.

Eva sagði að Ísland komi ekki til með að geta staðið undir þeim kröfum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Bretar og Hollendingar gera á landið. Í greininni gagnrýnir Eva Hollendinga og Breta harðlega fyrir vægðarleysi gagnvart Íslandi og að gripið hafi verið til hneykslanlegra þvingunartilrauna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.