ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Frægir gegn Kaupþingi

10:50 › 2. ágúst 2009
Jónína Benediktsdóttir er í hópnum ásamt fjölda annarra Íslendinga.

Jónína Benediktsdóttir er í hópnum ásamt fjölda annarra Íslendinga. Mynd DV

Búið er að stofna hóp á Facebook gegn Kaupþingi en þar er fólk sem á í viðskiptum við bankann, hvatt til að hætta þeim. Eins og DV greindi frá í morgun tók Grímur Atlason, sveitastjóri Dalabyggðar, út allt sitt fé í gærkvöldi. Hann er ekki í þessum hópi en nokkrir þjóðþekktir Íslendingar eru þó í hópnum.

Þar má nefna sjónvarpskonuna Valgerði Matthíasdóttur, eða Völu Matt eins og hún er gjarnan kölluð, Þrym Sveinsson, sem er einn vinsælasti bloggari landsins, Inga Björn Albertsson, fyrrverandi þingmann, verðbréfasalann Guðmund Franklín Jónsson og Jónínu Benediktsdóttur svo dæmi séu tekin.

Hópurinn var stofnaður fljótlega eftir að Kaupþing fékk lögbannið í gegn hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Þegar þetta er skrifað eru 183 meðlimir í hópnum sem fer ört stækkandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.