ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Breskir hermenn allt of feitir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:11 › 2. ágúst 2009
Margir breskir hermenn eru allt of þungir til að berjast á vígvöllum, til dæmis í Afganistan.

Margir breskir hermenn eru allt of þungir til að berjast á vígvöllum, til dæmis í Afganistan. Mynd Photos

Breskir hermenn eru að verða svo feitir að það stofnar lífi fólks í hættu. Þetta kemur fram í gögnum frá breska hernum sem breska blaðið The Observer birtir í sunnudagsblaði sínu. Þar kemur fram að tölvupóstur hafi verið sendur á allar deildir breska hersins fyrr í þessum mánuði þar sem þessum áhyggjum var lýst.

Það er kannski ekki að undra að margir breskir hermenn séu of feitir. Árið 2006 slakaði breski herinn á kröfum um úthald og líkamlegt ástand til að fá fleiri nýliða í herinn. Á sama tíma hafa Bretar - eins og fleiri íbúar annarra vestrænna þjóða - fitnað og fitnað og er nú svo komið að aldrei hafa jafn margir Bretar verið yfir kjörþyngd.

Árið 2006 mátti BMI-stuðull hermanna ekki vera yfir 28. Eftir breytinguna mátti hann hinsvegar vera 32 en samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni eru þeir of þungir, þeir sem eru með BMI-stuðul yfir 25. BMI-stuðull er líkamsþyngdarstuðull þar sem hlutfall þyngdar og hæðar er mælt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.