Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Þrír fangar, sem flúðu úr fangelsi í Belgíu í síðustu viku, frömdu fjögur vopnuð rán á aðeins þremur klukkustundum í gær. Þetta segja fulltrúar lögreglunnar í Brugge en mennirnir voru fangar í fangelsi skammt frá borginni.
Mennirnir flúðu úr fangelsi í síðustu viku þegar kollegar þeirra utan fangelsisveggjanna rændu þyrlu og neyddu flugmanninn til að lenda á lóð fangelsisins. Einn þeirra, Ashraf Sekkaki, er einn hættulegasti glæpamaður Belgíu og hefur hann framið fjölda vopnaðra rána og ofbeldisbrota í gegnum tíðina.
Í gær er talið að mennirnir hafi látið til skarar skríða meðal annars í banka og á bensínstöð. Tókst mönnunum að hafa eitthvað af fé upp úr krafsinu og gerir lögregla nú allt sem í hennar valdi stendur til að finna mennina.





Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu