ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Magnús kaupir sér flugvél

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:08 › 19. ágúst 2009
Flugáhugamaðurinn Magnús kaupir flugvél.

Flugáhugamaðurinn Magnús kaupir flugvél.

Þrátt fyrir skuldastöðu Magnúsar Kristinssonar hjá gamla Landsbankanum, og þrátt fyrir að afskrifa þurfi tugi milljarða af skuldum hans við bankann keypti Magnús sér nýlega flugvél ásamt tveimur öðrum Eyjamönnum, þeim Guðmundi Alfreðssyni og Arnari Richards.

Magnús er mikill flugáhugamaður og notaði meðal annars þyrlu til að ferðast til og frá Vestmannaeyjum þar til rétt fyrir bankahrunið í haust. Frá þessu er greint á vefsíðu flugfélags Selfoss.

Á síðunni segir um flugvélakaupin: „Ein af þeim flugvélum, sem hafa verið hvað lengst með aðsetur á Selfossflugvelli, fékk nýja eigendur þann 29. júlí síðastliðinn. Hér er verið að tala um TF-EOS sem er af gerðinni Piper PA-28-151 Cherokee Warrior. Nýir eigendur eru frá Vestmannaeyjum og heita Guðmundur Alfreðsson, Arnar Richards og Magnús Kristinsson. Má segja að hlutirnir hafi gengið nokkuð hratt fyrir sig, en nýir eigendur fréttu að vélin væri til sölu og voru ekkert að hika við hlutina heldur skelltu sér beint upp á land að skoða hana og leist svo vel á gripinn að 2 dögum seinna komu þeir aftur, keyptu flugvélina og flugu henni til Eyja.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?