Lögreglan í Orange County í Bandaríkjunum hefur borið kennsl á lík konu sem fannst í ferðatösku og hafði verið kastað í ruslagám. Hin myrta er 28 ára gömul fyrrverandi sundfatafyrirsæta sem hvarf um helgina.
Síðast sást til fórnarlambsins, Jasmine Fiore, að morgni föstudags á heimili hennar í Los Angeles. Tilkynnt var um hvarf hennar á laugardagskvöldið en það gerði 32 ára Kanadamaður sem nú er hugsanlega talinn hafa tengst hvarfinu. Hann fylgdi Fiore í samkvæmi sem þau sóttu kvöldið áður en hún hvarf.
Lögreglan telur að maðurinn Ryan Jenkins sé hugsanlega á leið til Kanda í BMW-bifreið sinni en hún leitar hans nú til að geta yfirheyrt hann. Bifreið Fiore hefur ekki enn fundist.
Lík Fiore fannst í ruslagám í borginni Buena Park í Orange County á laugardagsmorgun. Það var maður sem var að róta í gámnum í leit að flöskum og dósum sem fann líkið. Lögregluembættin í Los Angeles og Buena Park báru saman bækur sínar og fundu út að líkið var af Fiore.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung