ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 3m/s E

Tugmilljarða skuldir Magnúsar afskrifaðar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:30 › 18. ágúst 2009
Magnús er einna helst þekktur sem annar af eigendum fjárfestingafélagsins Gnúps sem varð gjaldþrota í árslok 2007. Fall Gnúps er talið marka upphafið að íslenska efnahagshruninu en félagið var fyrsta stóra fjárfestingafélagið til að verða gjaldþrota.

Magnús er einna helst þekktur sem annar af eigendum fjárfestingafélagsins Gnúps sem varð gjaldþrota í árslok 2007. Fall Gnúps er talið marka upphafið að íslenska efnahagshruninu en félagið var fyrsta stóra fjárfestingafélagið til að verða gjaldþrota. DV-mynd Sigtryggur Ari

Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson hefur samið við Landsbankann um að stór hluti 50 milljarða króna skuldar hans við Landsbankann verði afskrifaður. Hann mun þurfa að greiða þrotabúi gamla Landsbankans það litla sem hann var persónulega ábyrgur fyrir.

Hluti skuldanna er tilkominn vegna kaupa Magnúsar á Toyota-umboðinu fyrir fjórum árum. Magnús var hluthafi í Landsbankanum við bankahrunið í haust.

Magnús hefur samið við skilanefnd Landsbankans um að stór hluti af tæplega 50 milljarða króna skuldum eignarhaldsfélaga hans verði afskrifaður, samkvæmt heimildum DV. Nákvæmar upplýsingar um upphæðir afskriftanna liggja hins vegar ekki fyrir. Skilanefndin mun ekki leysa til sín þann kvóta sem Magnús á. Magnús var ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir langmestum hluta þeirra lána sem verið er að afskrifa.

Magnús mun hins vegar þurfa að standa skil á því sem hann er persónulega ábyrgur fyrir.

Nánar um málið í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.