ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Samkynhneigðir ofsóttir í Írak

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:37 › 17. ágúst 2009
Samkynhneigðir eru kerfisbundið pyntaðir og myrtir í Írak að sögn mannréttindasamtaka.

Samkynhneigðir eru kerfisbundið pyntaðir og myrtir í Írak að sögn mannréttindasamtaka.

Hundruð samkynhneigðra karlmanna hafa sætt pyntingum og verið myrtir í Írak undanfarna mánuði, sumir hverjir af öryggissveitum landsins. Þessu halda mannréttindasamtökin Human Rights Watch fram í dag.

Samtökin segja að af viðtölum við lækna að dæma hafi hundruð samkynhneigðra karlmanna verið myrtir, en erfitt sé þó að staðfesta nákvæma tölu.

Yfirvöld í Írak viðurkenna að samkynhneigð sé litin hornauga í þjóðfélaginu en ríkisstjórnin styðji ekki kerfisbundnar árásir gegn samkynhneigðum. Talsmaður stjórnarinnar, Ali al-Dabbagh, segir ríkisstjórnina ekki geta séð samkynhneigðum fyrir sérstakri vernd.

Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch verður fólk fyrir árásum á götum úti og sérstakar rassíur gerðar á heimili saklausra borgara. Þar sé fólk pyntað og krafið um að nefna nöfn samkynhneigðra og vitorðsmanna þeirra. Margir endi á sjúkrahúsum og í líkhúsum að sögn samtakanna sem byggir skýrslu sína á frásögnum lækna.

Hatursglæpir sem þessir hafa verið að færast í aukana í borgum eins og Sadr nærri Bagdad að sögn samtakanna.

Íraskir klerkar segja að samkynhneigð verði að uppræta en hafa þó talað gegn árásum sem þessum að því er kemur fram í frétt CNN um málið í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?