ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Reyndi að kæra misheppnuð dópviðskipti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:21 › 17. ágúst 2009
Maðurinn reyndi að kæra misheppnuð dópviðskipti sín.

Maðurinn reyndi að kæra misheppnuð dópviðskipti sín.

Ungur maður varð fyrir því að vera rændur tíu þúsund krónum í Reykjavík um helgina. Hann mætti á lögreglustöðin við Hverfisgötu og kærði verknaðinn. Viðurkenndi hann fullum fetum að hafa hitt tvo menn af erlendu bergi brotna sem vildu selja honum e-pillur en þeir hafi tekið við seðlunum frá honum og hlaupið á brott.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kom maðurinn, sem er á milli tvítugs og þrítugs, í miklu uppnámi inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu og vildi kæra ránið. Hann hefði hitt tvo menn af erlendu bergi brotna sem vildu selja honum fíkniefni. Kvaðst maðurinn hafa rétt þeim tíu þúsund krónur og þeir látið sig hverfa inn á skemmtistað sem þeir stóðu fyrir utan og aldrei látið sjá sig aftur.

Hann kom því næst upp á lögreglustöð og vildi kæra þessa óprúttnu náunga sem gáfu sig út fyrir að vera fíkniefnasala en að sögn lögreglu var honum vísað út með kæruefnið.

Tjáði maðurinn lögreglu að sér þætti þetta afar sárt þar sem hann væri atvinnulaus um þessar mundir og munaði því um seðlana. Bæri lögreglu því að vara almenning við mönnum sem þessum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.