Tryggvi og Mishkin, sem sjást hér haldandi á rifflum, drápu eitt hreindýr við þriðja mann á Austurlandi á dögunum.
Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður og vinur hans Fredrich Mishkin fóru saman á hreindýraveiðar á Austurlandi fyrir nokkrum dögum. Tvímenningarnir drápu eina kvígu við þriðja mann samkvæmt Tryggva Þór. „Hann kom hingað og við vorum saman hérna í viku fjölskyldurnar. Við fórum hringveginn og meðal annars fórum við á hreindýraveiðar fyrir austan,“ segir Tryggvi Þór sem bætir því við aðspurður að hann hafi ekki áður farið á slíkar veiðar. Tryggvi segir að hann og Mishkin hafi þó ekki skotið dýrið; það hafi vinur hans frá Eskifirði gert en sá var með veiðileyfið. „Við vorum fyrir austan og þá spurði þessi vinur minn hvort við vildum ekki bara koma með. Við vissum ekkert af þessu fyrirfram.“
Veiðifélagarnir Tryggvi Þór og Mishkin, sem báðir eru doktorar í hagfræði, skrifuðu saman fræga skýrslu fyrir Viðskiptaráð Íslands árið 2006 þar sem þeir komust að þeirri niðurstöðu að líkur á efnahagskreppu á Íslandi væru ekki miklar. Skýrsla Tryggva og Mishkins gengur undir nafninu „hvítþvottarskýrslan“ meðal kunnugra því þar voru færð rök fyrir því ekki steðjaði mikil hætta að íslensku efnahagslífi. Annað kom hins vegar á daginn.
Upplýst hefur verið í Wall Street Journal að Mishkin fékk 135 þúsund dollara, eða rúmlega 17 milljónir króna, fyrir að skrifa skýrsluna. Tryggvi segist aðspurður ekki muna hvað hann fékk greitt fyrir skýrsluna. Hann segist hafa verið forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á þeim tíma sem skýrslan var unnin og að gerður hafi verið samningur við stofnunina um að hún ynni skýrsluna ásamt Mishkin. „Hagfræðistofnun fékk greitt og ég var á launum hjá stofnunina á meðan ég skrifaði skýrsluna. Svo fékk ég eitthvað greitt aukalega en ég bara man ekki hvað það var mikið. Þetta voru hins vegar engar stórar upphæðir,“ segir Tryggvi og bætir því við að hann hafi ekki orðið ríkur maður fyrir vikið.
DV hefur lagt fram beiðni hjá Viðskiptaráði Íslands um að blaðið fái upplýsingar um greiðslur ráðsins til Tryggva Þórs og Mishkins, sem og greiðslur til hagfræðinganna Friðriks Más Baldurssonar og Richard Portes fyrir að skrifa aðra skýrslu um viðskiptalífið árið 2007. Beiðnin er til meðferðar hjá Viðskiptaráði.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
