ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

„Þetta er hans mál“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:45 › 13. ágúst 2009
Ívar Örn Kolbeinsson. Fréttablaðið heldur því fram að hann hafi staðið að vopnuðu ráni um verslunarmannahelgina.

Ívar Örn Kolbeinsson. Fréttablaðið heldur því fram að hann hafi staðið að vopnuðu ráni um verslunarmannahelgina.

Tveir menn réðust inn í verslun 11-11 í Skipholti vopnaðir hnífi um verslunarmannahelgina. Þeir ógnuðu starfsfólki, tóku með sér þýfi og óku síðan á brott á bláleitum smábíl. Lögreglan handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri sem játuðu verknaðinn. Yfirheyrslur á mönnunum leiddu til handtöku þriðja mannsins sem einnig játaði aðild að ráninu.

Í Fréttablaðinu í fyrradag var því haldið fram að tónlistarmaðurinn Ívar Örn Kolbeinsson væri einn þeirra sem stóðu að ráninu. Ívar myndaði tvíeykið Dr. Mister and Mr. Handsome ásamt Guðna Rúnari Gunnarssyni sem gáfu út plötuna Dirty Slutty Hooker Money árið 2006. Tónlist kappanna tveggja vakti harðar deilur á Íslandi þar sem textar þeirra fjölluðu helst um fíkniefnaneyslu og voru taldir niðrandi í garð kvenna. Á þessum tíma talaði Ívar einnig opinskátt um sína eigin fíkniefnaneyslu.

Nú er Ívar einn af liðsmönnum nýstofnuðu hljómsveitarinnar Krooks ásamt systur sinni Rebekku. Hún sló rækilega í gegn með gleðisveitinni Mercedes Club sem gerði allt vitlaust í forkeppni Evróvisjón með laginu Ho, Ho, Ho, We say Hey, Hey, Hey. Rebekka segir Ívar þurfa að svara sjálfur fyrir þessar ásakanir Fréttablaðsins.

„Ég vil ekkert tjá mig um þetta. Þetta er hans mál. Hann verður að svara fyrir þetta sjálfur,“ segir Rebekka í samtali við DV. DV reyndi að ná í Ívar en búið er að loka símanum hans. Aðspurð hvort hægt sé að ná í Ívar segir Rebekka hann vera upptekinn og ekki hægt að ná í hann á næstunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.