ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

„Syni mínum var rænt og þeir gerðu ekkert“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:44 › 13. ágúst 2009
Hvar er sonur minn? Talið er að þúsundum barna sé rænt á ári hverju í Kína og þau seld á svörtum markaði.

Hvar er sonur minn? Talið er að þúsundum barna sé rænt á ári hverju í Kína og þau seld á svörtum markaði.

Þúsundum barna er rænt á ári hverju í Kína. Mannræningjar geta fengið allt að 150 þúsund krónur fyrir stráka en rúmlega 25 þúsund krónur fyrir stelpur. Foreldrar sem hafa misst börnin sín á þennan hátt segja lögregluna ekkert aðhafast á meðan börnum er rænt á hverjum einasta degi. Syni Deng Huidong var rænt fyrir ári síðan. Hún er reið lögreglunni sem hjálpaði henni ekki við leitina.

Bandaríska utanríkisráðuneytið telur að tíu til tuttugu þúsund konum og börnum sé rænt á ári hverju í Kína í þeim tilgangi að selja þau. Yfirvöld í Kína segja að aðeins rúmlega tvö þúsund börnum og konum hafi verið rænt á síðasta ári en Sameinuðu þjóðirnar telja opinberar tölur alltof lágar.

Er þetta sonur minn?
Deng Huidong er ein fjölmargra kínverskra kvenna sem hefur lent í því að missa barn sitt til mannræningja. Syni hennar, Ye Ruicong, var rænt fyrir rúmlega ári síðan þegar hann var aðeins níu mánaða gamall. Alltaf þegar Deng sér strák um þriggja ára aldurinn getur hún ekki annað en velt því fyrir sér hvort hann gæti verið sonur hennar.

„Ég ímynda mér hve hávaxinn hann er núna og hve hratt hann gæti hlaupið. Ég tek myndir af strákum sem eru svipað gamlir og hann væri núna. Þannig þekki ég hann ef ég hitti hann einhvern daginn.“

Drengir verðmætari
Deng heldur að Ye hafi verið seldur til fjölskyldu sem var að leita að karlkynserfingja, hugsanlega nokkrum klukkustundum eftir að honum var rænt.

Drengir eru taldir verðmætari en stúlkubörn í Kína og fá mannræningjar hátt verð fyrir drengi á svarta markaðinum. Kona sem stundaði mannrán sagði lögreglunni í Kína fyrir tveimur árum að rúmlega 150 þúsund krónur fengjust fyrir drengi á mansalsmarkaðinum og rúmlega 25 þúsund krónur fyrir stúlkur. Gera má ráð fyrir að verðið hafi hækkað síðan þá.

Að sögn Deng hvarf Ye á svipstundu. Er hún rifjaði upp daginn sem hann hvarf sagði Deng að hvítur sendiferðabíll hafi keyrt hægt fram hjá fyrir utan heimili hennar er hún var að leika við son sinn og dóttur. Sendiferðabíllinn stöðvaðist, hurðirnar opnuðust og maður hallaði sér út og greip Ye. Því næst keyrði bíllinn burt á ofsahraða.

„Þetta gerðist á nokkrum sekúndum. Fólkið steig ekki einu sinni út úr bílnum,“ sagði Deng í viðtali við fréttastofuna CNN.

Reið lögreglunni
Deng elti bílinn á hlaupum þangað til ókunnugur maður á mótorhjóli bauð hjálp sína og saman eltu þau bílinn þangað til þau hittu fyrir lögreglubíl.

„Ég fór inn í ansans lögreglubílinn en eftir nokkrar sekúndur beygðu þeir niður aðra leið en sendiferðabíllinn. Ég spurði þá grátandi af hverju en þeir sögðu ekki orð. Seinna á lögreglustöðinni spurði ég af hverju þeir hefðu ekki elt bílinn og lögreglumaðurinn sagði mér að hann hefði ekki verið á vakt þannig að það var á ábyrgð annarra að elta mannræningjana. Ég var svo reið við lögregluna. Syni mínum var rænt og þeir gerðu ekkert. Það var eins og sonur minn væri minna virði en hundur,“ sagði Deng. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir CNN vildi lögreglan ekkert tjá sig um málið.

Undantekning, ekki regla
Fleiri foreldrar horfinna barna hafa kvartað yfir aðgerðaleysi lögreglunnar sem rannsakar málin stundum ekki fyrr en vikum eftir að barninu var rænt.
Chen Shique hjá mannránsdeildinni í öryggismálaráðuneytinu í Kína segir lög í landinu hafa breyst og nú þurfi lögreglan að rannsaka öll mannshvörf sem glæpi.

„Lögreglan hefur þau fyrirmæli að bregðast við um leið og þeir fá tilkynningu um barnshvarf og þessi mál eru nú rannsökuð sem glæpir. Hér áður fyrr voru engin vitni að hvarfinu né upptökur úr öryggismyndavélum. Þá hjálpuðu lögreglumenn við leit að horfnum börnum og rannsökuðu málin en þau voru ekki meðhöndluð sem glæpir. Nú eru öll slík mál rannsökuð sem glæpir,“ sagði Chen. Hann segir mál þar sem foreldrar kvarta yfir aðgerðarleysi lögreglu vera undantekningu, ekki reglu.

Of sársaukafullt
Chen segir lögreglu hafa tekið sig á í málum sem varða barnshvörf. Í landinu er listi yfir tuttugu verstu mannræningja landsins og ellefu af þeim hafa verið handteknir. Hann segir foreldra oft eiga í erfiðleikum með að bera kennsl á börn sín þegar þau finnast og því komi til greina að starfrækja DNA-gagnagrunn í vissum hlutum landsins sem gerir það kleift að tengja börn við foreldra sína.
Deng, móðir Ye litla, sagði tilhugsunina um að sameinast syni sínum á ný of sársaukafulla.

„Núna vona ég bara að góðhjörtuð fjölskylda annist son minn. Ég gæti leyft þeim að annast son minn ef þeim þykir í raun vænt um hann og fullvissa mig um að hann lifi góðu lífi.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.