ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Svínaflensan lamar lið Grindavíkur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:41 › 13. ágúst 2009
Grindvíkingar illa staddir vegna veikinda.

Grindvíkingar illa staddir vegna veikinda.

Meistaraflokkur Grindavíkur í knattspyrnu sér ekki fram á það að geta stillt upp liði um helgina en staðfest hefur verið að tveir leikmenn liðsins séu með svínaflensuna og átta aðrir liggja fárveikir fyrir með inflúensueinkenni.

Þorsteinn Gunnarsson, formaður Grindavíkur, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hann hefði sent KSÍ bréf þar sem óskað er eftir því að leik liðsins á sunnudaginn kemur verði frestað. Þorsteinn sagði ekki forsvaranlegt að spila leikinn og þá væri ekki fyrirséð að liðið væri í standi til að leika um miðja næstu viku heldur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.